Chante Sandiford, sem spilað hefur lengi á Íslandi, verður markvarðarþjálfari kvennalandsliðs Guyana í landsliðsglugganum sem núna stendur yfir.
Chante spilaði síðasta sumar með Selfossi er liðið komst upp úr 2. deild kvenna.
Chante spilaði síðasta sumar með Selfossi er liðið komst upp úr 2. deild kvenna.
Selfoss var hennar fyrsta félag á Íslandi en hún spilaði fyrst fyrir félagið frá 2015 til 2017. Þaðan gekk hún til liðs við Avaldnses í Noregi og hefur síðan þá leikið með Haukum og Stjörnunni á Íslandi.
Eftir tímabilið 2022 gerðist Chante aðstoðarþjálfari kvennaliðs Grindavíkur.
Hún á að baki 18 leiki fyrir landslið Guyana og verður núna markvarðarþjálfari liðsins. Þess má geta að í landsliðshópnum er nýr markvörður ÍBV, Arden La-Rose.

