Eddie Howe mun stýra Newcastle áfram á næstu leiktíð eftir fund með sádi arabísku eigendum félagsins. Það var árlegur fundur í vikunni og allir aðilar komust að samkomulagi um að halda samstarfinu áfram.
Tímabilið hefur verið mikil vonbrigði en BBC segir frá því að eigendurnir ætli að fá góða hjálp til að greina það sem fór úrskeðis til að gera mun betur á næstu leiktíð. Howe mun taka virkan þátt í greiningunni.
Hann var ráðinn stjóri liðsins árið 2021 en hann sagði frá því fyrir helgi að hann hafi staðið frammi fyrir erfiðum spurningum þegar hann hélt kynningu fyrir eigendum og stjórn.
Aðeins Wolves, Burnley og West Ham hafa tapað fleiri leikjum en 16 töp Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Howe batt enda á 70 ára bið Newcastle eftir stórum titli með því að vinna deildabikarinn á síðasta tímabili og þá tryggði liðið sér sæti í Meistaradeildinni árin 2023 og 2025.


