Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   sun 03. maí 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Blikar í Eyjum og meistararnir í Keflavík
Breiðablik heimsækir ÍBV
Breiðablik heimsækir ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Fjórir síðustu leikir 5. umferðar Bestu deildar karla fara fram í dag.

ÍBV tekur á móti Breiðabliki klukkan 16:00 á Hásteinsvelli, en Eyjamenn eru enn í leit að fyrsta sigrinum á meðan Blikar reyna að halda í við toppliðin.

Stjarnan og ÍA mætast á sama tíma á Samsung-vellinum og þá munu nýliðar Keflavíkur spila við Íslandsmeistara Víkings klukkan 18:00. FH og Fram eigast einnig við á þeim tíma, en leikurinn er spilaður í Kaplakrika.

Tveir leikir eru spilaðir í Lengjudeild kvenna. FHL, sem féll úr Bestu deildinni í fyrra, spilar við Völsung á meðan KR spilar við Selfoss. Báðir leikirnir hefjast klukkan 14:00.

Leikir dagsins:

Besta karla
16:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
16:00 Stjarnan-ÍA (Samsungvöllurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 FH-Fram (Kaplakrikavöllur)

Lengjudeild kvenna
14:00 FHL-Völsungur (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 KR-Selfoss (Meistaravellir)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 8 7 1 0 26 - 4 +22 22
2.    KR 7 6 1 0 27 - 13 +14 19
3.    Fram 8 5 2 1 21 - 13 +8 17
4.    Valur 8 5 0 3 17 - 14 +3 15
5.    Breiðablik 7 3 3 1 13 - 8 +5 12
6.    Keflavík 8 3 2 3 11 - 12 -1 11
7.    KA 8 3 1 4 9 - 10 -1 10
8.    ÍA 8 2 3 3 11 - 16 -5 9
9.    Stjarnan 8 2 1 5 14 - 18 -4 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    FH 8 0 2 6 12 - 25 -13 2
12.    ÍBV 8 0 2 6 8 - 22 -14 2
Slapp
banner