Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   sun 03. maí 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Óvíst hvort nýliðarnir kaupi Cajuste
Mynd: Ipswich Town
Það er algerlega óvíst hvort nýliðar ensku úrvalsdeildarinnar í Ipswich Town muni kaupa sænska leikmanninn Jens Cajuste frá Napoli í sumar. Þetta segir Fabrizio Romano.

Ipswich fékk Cajuste á láni frá Napoli árið 2024 er liðið komst upp í ensku úrvalsdeildina.

Hann féll með liðinu í fyrra en ákvað að framlengja dvöl sína um ár til viðbótar.

Í lánssamningnum var kaupskylda ef Ipswich myndi koma sér aftur upp í ensku úrvalsdeildina og hann myndi spila 50 prósent af leikjum liðsins.

Ipswich er komið aftur upp en Cajuste hefur ekki spilað 50 prósent leikja og fær því enska félagið möguleika á að hugsa málið.

Félagið hefur frest til 10. júní til þess að virkja kaupákvæði sem nemur um 7,5 milljónir punda.

Cajuste er með 31 leik með Ipswich á tímabilinu en aðeins 1280 mínútur spilaðar. Á síðustu þremur mánuðum hefur hann aðeins spilað um það bil hálftíma og því ekkert víst að Ipswich vilji halda honum áfram í endurkomu sinni í ensku úrvalsdeildina á næstu leiktíð.
Slapp
banner
banner