Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   sun 03. maí 2026 19:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hefur mikla trú á leikstíl ÍBV - „Gekk ekki upp í fyrstu hjá Víkingum"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV tapaði gegn Breiðabliki í Eyjum í dag 2-1 eftir að hafa komist yfir strax á fyrstu mínútu. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Arnar Magnússon, fyrirliða Eyjamanna, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  2 Breiðablik

„Er svekktur að tapa. Það var orka í okkur í byrjun leiks og við vorum að berjast fyrir hvorn annan. Fúlt að við fáum ekkert út úr því," sagði Sigurður Arnar.

„Ef við spilum svona tökum við einhver stig í sumar. Við þurfum samt að skerpa á ákveðnum hlutum, mörkin sem við fáum á okkur eru ódýr og við megum gera betur í ákveðnum stöðum sem við komumst í. Grunnvinnan var í lagi og þetta var ágætis leikur."

Eyjamenn spila mikið út frá markmanni og Sigurður Arnar hefur gríðarlega mikla trú á hugmyndafræðinni.

„Ég held að við ættum að gefa þessu tíma og við þurfum að hafa trú á þessu, fólkið í kringum félagið og leikmennirnir. Við sáum að þetta gekk ekki upp í fyrstu hjá Víkingunum og svo þegar þetta small þá heldur betur small þetta," sagði Sigurður.

„Þetta gekk ekki hjá KR í fyrra svo small þetta. Þeir höfðu trú á verkefninu allan tímann og stóðu með þjálfurunum og leikstílum og eru að uppskera eftir því núna. Við erum kannski ekki að fara sömu leið en svipaða. Stundum lítur þetta illa út en við þurfum að hafa trú á þessu. Ef ekki í sumar þá kannski á næsta ári eða ári eftir það. Ég hef trú á þessu og við þurfum bara að halda áfram."
Slapp
banner