Hákon Arnar Haraldsson var á sínum stað í byrjunarliði Lille og skoraði fyrra mark leiksins í 1-1 jafntefli gegn Le Havre í fyrsta leik dagsins í franska boltanum.
Hákon skoraði á 29. mínútu (markið má sjá neðst í fréttinni) og var Issa Soumaré búinn að jafna metin fyrir gestina skömmu síðar. Lille sótti án afláts á heimavelli en tókst ekki að skora annað mark þrátt fyrir urmul marktilrauna.
Lille er í afar harðri baráttu um meistaradeildarsæti og situr sem stendur í þriðja og síðasta sæti Ligue 1 sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildina á næstu leiktíð. Lyon og Rennes fá tækifæri til að hirða sætið af Lille þegar þau eigast við í innbyrðisviðureign í kvöld.
Stefán Teitur Þórðarson spilaði þá seinni hálfleikinn í fjörugu jafntefli hjá Hannover gegn Preussen Münster í næstefstu deild í Þýskalandi. Stefáni var skipt inn af bekknum í stöðunni 2-2 og náði hann forystunni fyrir sína menn á 85. mínútu leiksins.
Það dugði þó ekki til því gestirnir jöfnuðu metin í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 3-3.
Þetta eru tvö töpuð stig fyrir Hannover í toppbaráttunni þar sem aðeins eitt stig skilur liðin í 2.-4. sæti deildarinnar að þegar tvær umferðir eru eftir af deildartímabilinu. Hannover er aðeins einu stigi frá öðru sætinu sem veitir beinan þátttökurétt í Bundesliga á næstu leiktíð.
Á sama tíma gerði Greuther Fürth jafntefli við Nürnberg og var Brynjar Ingi Bjarnason ónotaður varamaður í liði heimamanna. Greuther Fürth er í afar harðri fallbaráttu þegar tvær umferðir eru eftir.
Brynjar og félagar eru með 34 stig eftir 32 umferðir og í harðri baráttu við Eintracht Braunschweig og Fortuna Düsseldorf um öruggt sæti í deildinni. Liðin þrjú eru jöfn á stigum og með svipaðar markatölur.
Í sænska boltanum fékk Daníel Tristan Guðjohnsen að spila síðustu 40 mínúturnar í tapi Malmö á heimavelli gegn Mjällby á meðan Arnór Sigurðsson var ekki í hóp. Liðin eru jöfn með 10 stig eftir 6 umferðir.
Í næstefstu deild var Logi Hrafn Róbertsson í byrjunarliði Varnamo sem tapaði fyrir Östersund. Varnamo er með 9 stig eftir 5 umferðir, tveimur stigum meira heldur en andstæðingar dagsins.
Að lokum var Ari Leifsson ónotaður varamaður í jafntefli hjá Kolding í næstefstu deild í Danmörku.
Lille 1 - 1 Le Havre
1-0 Hákon Arnar Haraldsson ('29)
1-1 Issa Soumare ('33)
Hannover 3 - 3 Preussen Munster
0-1 I. Rondic ('25)
0-2 S. Yamada ('39)
1-2 M. Bundu ('45+1)
2-2 M. Bundu ('45+4)
3-2 Stefán Teitur Þórðarson ('85)
3-3 J. Hendrix ('93)
Greuther Furth 1 - 1 Nurnberg
Malmö 2 - 3 Mjallby
Östersund 3 - 2 Varnamo
Kolding 1 - 1 Hvidovre
???????? | Qui d’autre qu’Hákon Haraldsson pour ouvrir le score dans cette rencontre ?! ?????? #LOSCHAC
— DAZN France (@DAZN_FR) May 3, 2026
???? : @ligue1plus pic.twitter.com/JdB9yFuVKO





