Bosníski þjálfarinn Miron Muslic verður áfram hjá Schalke til 2028, en þetta var staðfest eftir að hann kom liðinu upp í úrvalsdeildina í gær.
Muslic hætti með Plymouth Argyle rétt eftir að hafa fallið niður í C-deildina.
Það tímabilið hafði Schalke hafnað í 14. sæti og var nálægt því að falla niður um deild, en koma Muslic breytti öllu.
Schalke sneri við blaðinu undir hans stjórn og tryggði úrvalsdeildarsætið í gær og mun það því snúa aftur þangað eftir þriggja ára fjarveru.
Nú er ljóst að Muslic verður áfram en í samningnum var ákvæði um tveggja ára framlengingu ef hann kæmi Schalke upp um deild.
Muslic er því samningsbundinn Schalke til 2028 og mun stýra liðinu í endurkomu þess í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
????????????? Miron Musli? signs new deal at Schalke 04 until June 2028, authomatic new contract after promotion to Bundesliga. pic.twitter.com/sQMXCNCU5J
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 2, 2026



