Á þriðju mínútu uppbótartíma í leik FH og Fram í gær skullu þeir Ísak Óli Ólafsson, Sverrir Páll Hjaltested og Sigurjón Rúnarsson saman. FH-ingar voru í leit að jöfnunarmarki og kom langur bolti upp að vítateig Framara. Sigurjón komst í boltann og þeir Sverrir og Ísak skullu harkalega saman.
Þeir fóru á sjúkrabílum á sjúkrahús eftir leikinn og þurfti að sauma nokkur spor.
Þeir fóru á sjúkrabílum á sjúkrahús eftir leikinn og þurfti að sauma nokkur spor.
„Það þurfti að sauma 5-6 spor í þá báða, held að líðan sé eftir atvikum. Það eru reglur um hvernig endurkomuferlið á að vera, allavega til að byrja með og þeir verða frá næstu vikurnar. Þetta voru svakaleg högg, Ísak fékk tvö högg. Endurkoman fer eftir einkennum, en til að byrja með er algjör hvíld á þá."
„Þeir fengu heilahristing, fóru í skoðun hjá læknum og voru saumaðir. Þeir taka því rólega á næstunni, koma vonandi til baka sem fyrst, en ekki fyrr en þeir eru tilbúnir," segir Davíð Þór Viðarsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Sjúkraþjálfari FH sá um Sverri og sjúkraþjálfari Framara aðstoðaði Ísak. Ísak sneri aftur inn á völlinn en fann svo fyrir miklum svima eftir leikinn.
„Við vorum báðir saumaðir og teknir í gegnum þetta klassíska ferli (protocol). Við komumst sem betur fer fljótt að, vorum á sjúkrahúsinu í svona tvo tíma," segir Ísak Óli sem er fyrirliði FH.



