Conor Gallagher skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham í 2-1 sigri liðsins á Aston Villa í kvöld. Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur en liðið stökk upp úr fallsæti.
„Þetta var fullkomið kvöld og vonandi er þetta bara byrjunin. Við viljum halda þessu áfram í síðustu leikjum tímabilsins," sagði Gallagher.
„Þetta var gott mark. Ég er mjög ánægður að hafa skorað mitt fyrsta mark. Það er alltaf léttir að skora fyrsta markið og vonandi skora ég nokkur í viðbót hér eftir."
Gallagher hrósaði Roberto De Zerbi, sem tók við liðinu fyrir rúmum mánuði síðan, og sendi stuðningsmönnum skilaboð.
„Ég get ekki hrósað honum nógu mikið. Hann hefur verið mjög góður. Allir leikmennirnir í hópnum hafa tekið vel á móti honum, hann lætur manni líða svo vel. Hann nær því besta úr manni," sagði Gallagher.
„Þeir hafa gengið í gegnum erfitt tímabil með okkur. Vonandi er þetta byrjunin á einhverju frábæru."


