Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   sun 03. maí 2026 19:08
Haraldur Örn Haraldsson
Viktor Jóns: Ég tók eftir því að varnarlínan var helvíti framarlega
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þetta var rosalega gott að ná fyrsta sigrinum. Við vissum að frammistaðan hefur verið þarna, við höfum bara ekki verið að klára færin okkar og gera klaufaleg mistök þannig úrslitin hafa ekki verið að detta. Við vissum að ef við myndum halda frammistöðunni eins og hún er búin að vera og spila okkar leik. Þá myndi þetta detta á endanum," sagði Viktor Jónsson leikmaður ÍA eftir 2-1 sigur gegn Stjörnunni.


Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  2 ÍA

Viktor skorar sigurmarkið á 87. mínútu eftir að hafa fengið boltann við miðlínu og það voru engir Stjörnumenn í vörn.

„Ég tók eftir því að varnarlínan var helvíti framarlega og það var þarna pláss á bakvið. Sem betur fer vann Haukur boltann og sá hlaupið. Þannig ég bara reyndi að nýta mér þessa stöðu sem kom upp og það gekk upp," sagði Viktor.

Þetta var fyrsti sigurleikur ÍA á tímabilinu, og spurning hvort þetta geti gefið þeim þá vítamín sprautu sem þá hefur vantað.

„Þegar úrslitin fara að detta með góðri frammistöðu. Þá boðar það gott, en við verðum bara að halda okkur á jörðinni. Það er leikur á föstudaginn og mótið bara rétt að byrja, þannig við keyrum bara á þetta á fullri ferð og byggjum ofan á þetta," sagði Viktor.


Slapp
banner