Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
Horfðu á Besta spjallið - Helstu sögulínur teknar fyrir
Kristín Dís: Náðum að sigla þessu heim
Einar Guðna: Markmaðurinn minn átti náttúrúlega að vera tilbúinn
Gylfi Tryggva: Skandall, bara algjör skandall að dæma vítaspyrnu
Ian Jeffs: Þess vegna skorum við þrjú mörk í seinni
Guðni: Ef ekki hefði verið fyrir markmann þeirra þá hefði sigurinn orðið stærri
Ída Marín: Þá er þetta stress farið
Voru mjög daprar í fyrri hálfleik - „Ekki eins og við í Þór/KA viljum gera hlutina"
Óskar Smári: Förum að verja eitthvað sem er ekki komið
Systurnar svekktar - „Hann átti að láta okkur heyra það"
Hildur María svekkt: „Þetta var bara stöngin út“
Sigríður Theódóra: „Það var aldrei spurning um annað en að vera þar áfram“
Elmar Atli: Of graðir inn í seinni hálfleik
Heimir: Fórum í gildrurnar sem þeir settu fyrir okkur
Kennie: Pirraði mig mjög mikið
Úlfur Ágúst: Veit ekki hvað gerist í hálfleik
Rúnar Kristins: Ekki fallegur fótbolti en ég er með marga klóka menn
Jói Kalli: Gríðarlega svekktur
Aron þreyttur: Kærkomið að komast inn á völlinn aftur
Halli vildi tvö víti: Þeir fá að hanga alltof mikið í Ljúbba
   sun 03. maí 2026 21:12
Stefán Marteinn Ólafsson
Halli vildi tvö víti: Þeir fá að hanga alltof mikið í Ljúbba
Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur
Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík tók á móti Víkingum í 5. umferð Bestu deild karla á HS Orku vellinum í kvöld. Þrátt fyrir flotta frammistöðu hjá heimamönnum urðu þeir að sætta sig við tveggja marka tap.


Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  3 Víkingur R.

„Niðurstaðan 3-1 er alltof stórt tap að mínu mati" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur svekktur eftir tap. 

„Við hefðum átt að eiga skilið út úr þessu allavega eitt stig. Frammistaðan var fín en því miður úrslitin ekki" 

Keflavík mættu mun kraftmeiri út í seinni hálfleik og því svekkjandi fyrir heimamenn að fá ekkert úr þessum leik.

„Mér fannst við komast í góðar stöður, kannski ekkert mikið af dauðafærum en þó í lokin þá fáum við kannski einhver dauðafæri til þess að setja hann í rammann" 

„Við vorum bara fínir í dag, fínn leikur af okkar hálfu. Mér finnst við eiga að gera tilkall til þess að fá víti. Mér finnst brotið á Eið [Orra Ragnarssyni] eftir að hann skýtur boltanum á markið og svo finnst mér hangið í Stefani [Ljubicic] alltof mikið, þeir fá að hanga alltof mikið í Ljúbba og mér finnst við eiga að fá annað víti þar þegar hann er togaður niður í teignum" 

Davíð Helgi Aronsson lánsmaður frá Víkingum var ekki með Keflavík í dag en hann hefur átt flotta byrjun á mótinu. Keflvíkingar hefðu þurft að greiða einhverja summu ef hann hefði spilað á móti Víkingum í kvöld. 

„Hann hefði alveg geta spilað en liðin gerðu með sér samkomulag um lánssamning og í honum stendur að hann spili ekki á móti Víking" 

„Það er hægt að spila honum en það hefði kostað einhverjar krónur" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson.


Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 5 4 1 0 13 - 4 +9 13
3.    Breiðablik 5 3 2 0 8 - 2 +6 11
4.    Fram 5 3 1 1 15 - 9 +6 10
5.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
6.    Stjarnan 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    ÍA 5 1 2 2 6 - 10 -4 5
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    Keflavík 5 1 1 3 6 - 10 -4 4
11.    FH 5 0 1 4 8 - 15 -7 1
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner
banner