Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Dzeko og Schalke upp í úrvalsdeild - „Þetta er ástæðan fyrir því að ég spila fótbolta“
Mynd: Schalke
Schalke er komið aftur upp í úrvalsdeildina þremur árum eftir að hafa fallið úr henni.

Á síðasta tímabili hafnaði Schalke í 14. sæti B-deildarinnar og var nálægt því að falla niður í C-deild.

Félagið var á slæmum stað en Miron Muslic tók við liðinu síðasta sumar og náði að rétta úr kútnum.

Hann fékk Bosníumanninn Edin Dzeko í janúarglugganum sem raðaði inn mörkunum og kom Schalke í mjög góða stöðu. Dzeko, sem er fertugur, gerði sex mörk í níu leikjum og lagði upp þrjú mörk.

Schalke vann Fortuna Dusseldorf 1-0 og tryggði sætið í efstu deild, en Valgeir Lunddal Friðriksson lék síðustu tuttugu mínúturnar fyrir Dusseldorf.

Dzeko var í skýjunum með að koma Schalke upp, en hann veit þó ekki hvort hann fari með liðinu í efstu deild.

„Það er nægur tími til þess að hugsa um næsta skref. Þetta er ástæðan fyrir því að ég spila fótbolta og ég vil ekki hætta. Mér líður vel, en ég er fertugur. Sjáum til hvernig mér líður eftir HM og þá munum við setjast niður og ræða málin,“ sagði Dzeko.


Slapp
banner
banner
banner