Slúðurpakki dagsins er tekinn saman af BBC og koma ýmsir áhugaverðir leikmenn fyrir í dag. Sam Beukema og Rafael Leao gætu verið á leið úr Serie A og í ensku úrvalsdeildina.
Liverpool er búið að leggja fram tilboð í hollenska miðvörðinn Sam Beukema, sem er 27 ára gamall og leikur fyrir Napoli. Tilboðið hljómar upp á 28 milljónir evra. (AreaNapoli)
Roma ætlar að nýta kaupákvæðið sem er í lánssamningi Donyell Malen frá Aston Villa. Malen, 27, hefur verið einn af bestu leikmönnum Serie A deildarinnar frá félagaskiptunum og er hann kominn með 12 mörk í 16 leikjum í öllum keppnum með Roma. (Voetbal International)
Manchester United, Chelsea og Newcastle hafa einnig áhuga á Malen. Roma gæti því keypt hann af Aston Villa og selt hann svo í ensku deildina fyrir rétta upphæð. (Corriere dello Sport)
AC Milan er búið að bjóða portúgalska kantmanninn Rafael Leao, sem var besti leikmaður ítölsku deildarinnar þegar Milan varð síðast Ítalíumeistari, til ýmissa stórvelda í enska boltanum. Milan vill 50 milljónir evra fyrir 26 ára gamlan Leao sem er með tvö ár eftir af samningi. (The Hard Tackle)
Man Utd hefur áhuga á Danilo, 25 ára miðjumanni Botafogo í Brasilíu. Hann lék fyrir Nottingham Forest í tvö ár áður en hann skipti heim til Brasilíu. (Fogao.net)
Aston Villa og Newcastle hafa áhuga á sömu markvörðunum. Þau vilja bæði kaupa James Trafford, 23 ára varamarkvörð Manchester City, og Alex Remiro, 31 árs markvörð Real Sociedad. (Football Insider)
Goncalo Ramos, 24, gæti yfirgefið PSG eftir tímabilið. Hann vill meiri spiltíma og eru ýmis félög áhugasöm. (Fabrizio Romano)
Leeds United vill 10 milljónir punda til að selja Largie Ramazani í sumar. Ramazani, 25, er búinn að skora 6 mörk í síðustu 13 leikjum á lánssamningi hjá Valencia. (Football Insider)



