Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag var lagt mat á tíu stærstu skipti félagaskiptagluggans sem skellt var í lás í síðustu viku. Lagt var mat á byrjunina á mótinu hjá þessum leikmönnum, ekki gæði leikmannsins.
Þetta var gert fyrir leiki umferðarinnar sem var að klárast núna og því mögulega einhverjir sem hefðu hækkað eða lækkað ef þetta væri tekið aftur saman. Það er lítið búið af mótinu og erfitt að leggja dóm akkúrat núna, en það var reynt í útvarpsþættinum.
Einkunnirnar voru gefnar í bókstöfunum A, B, C og D þar sem A er auðvitað best og D er bara slakt.

Einkunnir fyrir tíu stærstu kaupin:
Arnór Ingvi Traustason (KR): A
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.): A+
Guðmundur Þórarinsson (ÍA): C+
Birnir Snær Ingason (Stjarnan): A-
Danijel Dejan Djuric (KA): D
Ægir Jarl Jónasson (Fram): Búinn að spila of lítið
Samúel Kári Friðjónsson (Valur): Búinn að spila of lítið
Gísli Eyjólfsson (ÍA): C
Oliver Heiðarsson (KA): Búinn að spila of lítið
Ívar Örn Árnason (Breiðablik): A+
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.