Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   sun 03. maí 2026 20:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Tottenham komst upp úr fallsæti
Mynd: EPA
Aston Villa 1 - 2 Tottenham
0-1 Conor Gallagher ('12 )
0-2 Richarlison ('25 )
1-2 Emiliano Buendia ('90 )

Tottenham er komið upp úr fallsæti eftir annan sigurinn í röð í úrvalsdeildinni. Þetta er í fyrsta sinn sem liðið vinnur tvo deildarleiki í röð síðan liðið vann fyrstu tvo leikina á tímabilinu.

Conor Gallagher kom Tottenham yfir þegar hann skoraði með góðu skoti fyrir utan teiginn. Þetta var fyrsta mark hans fyrir liðið síðan hann kom í janúar frá Atletico Madrid.

Richarlison sá til þess að Tottenham var með tveggja marka forystu í hálfleik þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Mathys Tel.

Seinni hálfleikur var nokkuð tíðindalítill en Emi Buendia klóraði í bakkann fyrir Aston Villa í blálokin þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Matty Cash.

Eins og fyrr segir er Tottenham komið upp úr fallsæti. Liðið situr í 17. sæti með 37 stig, stigi á undan West Ham. Aston Villa er í 5. sæti með 58 stig. Liðið fær Nottingham Forest í heimsókn í vikunni í seinni leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar en Villa er 1-0 undir í einvíginu.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner
banner