Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   sun 03. maí 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Ekkert heyrt frá Real Madrid
Mynd: EPA
Portúgalski þjálfarinn Jose Mourinho hefur ekkert heyrt frá spænska félaginu Real Madrid en hann hefur verið sterklega orðaður við endurkomu síðustu vikur.

Florentino Perez, forseti Real Madrid, er sagður vera með Mourinho á óskalistanum fyrir sumarið.

Alvaro Arbeloa lætur af störfum eftir tímabilið og er Mourinho á listanum með Didier Deschamps, Jürgen Klopp og Max Allegri.

Mourinho, sem þjálfar Benfica í heimalandinu, segist ekkert hafa heyrt frá Madrídingum.

„Nei, enginn frá Real Madrid hefur rætt við mig. Ég get fullvissað ykkur um það. Ég hef verið í kringum fótboltann í mörg ár, alveg eins og þið sem hafið starfað við blaðamennsku, þannig maður er alveg vanur þessu, en það er alla vega ekkert komið frá Real Madrid,“ sagði Mourinho.
Slapp
banner
banner
banner