Fótbolti.net ræddi við Aleksandar Linta, þjálfara ÍBV, eftir tap liðsins gegn Breiðabliki í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Breiðablik
„Ég er auðvitað svekktur, maður þarf að vera svekktur eftir alla tapleiki, þess vegna er maður í þessari íþrótt. Ég þarf að horfa aftur á leikinn til að sjá hvað við þurfum að gera betur en fyrstu viðbrögð eru að við gátum fengið meira út úr þessum leik," sagði Linta.
„Taktík hjálpar en ef orkan er ekki til staðar skiptir taktík ekki máli. Ég gerði nokkrar breytingar út af meiðslum og ég vil nýta alla leikmennina. Ég er með 22 manna hóp og ég hef trú á öllum og þeir munu allir fá tækifæri, það fer eftir því hversu vel þeir spila."
Næstu leikir liðsins eru gegn KA á Akureyri og Víkingi í Eyjum.
„VIð höfum ekki verið heppnir með leikjaniðurröðunina. Við munum spila á móti 5-6 bestu liðum Íslands í fyrstu 6-7 leikjunum. Svona er þetta og við verðum að berjast í gegnum það."
























