Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   sun 03. maí 2026 18:59
Haraldur Örn Haraldsson
Lárus Orri: Þetta er tvöfalt, stigin og frammistaðan
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þetta er mjög sætt, ekki bara fyrsti sigurinn heldur bara mjög vel spilað hjá okkur. Leikmenn stigu mjög hátt á það alveg frá byrjun, og við héldum boltanum vel innan liðsins og spiluðum leikinn bara mjög vel. Þannig það er tvöfalt, stigin og frammistaðan," sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA eftir 2-1 sigur gegn Stjörnunni.


Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  2 ÍA

Skagamenn lentu undir á 10. mínútu en gerðu vel í að koma til baka og vinna leikinn.

„Þetta sýnir góðan karakter. Það er auðvelt þegar á móti blæs að gefast upp en þetta var mjög fagmannleg frammistaða í dag, menn héldu haus allan tímann, höfðu trú á þessu allan tímann. Frábær stig á erfiðum útileik," sagði Lárus.

Viktor Jónsson skoraði sigurmarkið á 87. mínútu eftir verulega slakann varnarleik hjá Stjörnunni.

„Við vissum alveg hvernig þeir spila. Þeir eru með gríðarlega öflugt lið fram á við og rosalega góða leikmenn í liðinu hjá sér. En það eru líka veikleikar í þeirra liði eins og hjá öllum liðum, við reyndum að nýta okkur það," sagði Lárus.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner