Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
Horfðu á Besta spjallið - Helstu sögulínur teknar fyrir
Kristín Dís: Náðum að sigla þessu heim
Einar Guðna: Markmaðurinn minn átti náttúrúlega að vera tilbúinn
Gylfi Tryggva: Skandall, bara algjör skandall að dæma vítaspyrnu
Ian Jeffs: Þess vegna skorum við þrjú mörk í seinni
Guðni: Ef ekki hefði verið fyrir markmann þeirra þá hefði sigurinn orðið stærri
Ída Marín: Þá er þetta stress farið
Voru mjög daprar í fyrri hálfleik - „Ekki eins og við í Þór/KA viljum gera hlutina"
Óskar Smári: Förum að verja eitthvað sem er ekki komið
Systurnar svekktar - „Hann átti að láta okkur heyra það"
Hildur María svekkt: „Þetta var bara stöngin út“
Sigríður Theódóra: „Það var aldrei spurning um annað en að vera þar áfram“
Elmar Atli: Of graðir inn í seinni hálfleik
Heimir: Fórum í gildrurnar sem þeir settu fyrir okkur
Kennie: Pirraði mig mjög mikið
Úlfur Ágúst: Veit ekki hvað gerist í hálfleik
Rúnar Kristins: Ekki fallegur fótbolti en ég er með marga klóka menn
Jói Kalli: Gríðarlega svekktur
Aron þreyttur: Kærkomið að komast inn á völlinn aftur
Halli vildi tvö víti: Þeir fá að hanga alltof mikið í Ljúbba
   sun 03. maí 2026 21:13
Stefán Marteinn Ólafsson
Aron þreyttur: Kærkomið að komast inn á völlinn aftur
Aron Elís Þrándarson í baráttunni í kvöld
Aron Elís Þrándarson í baráttunni í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar áttu góða ferð suður með sjó þegar þeir heimsóttu Keflavík á HS Orku völlinn í 5. umferð Bestu deild karla í kvöld.


Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  3 Víkingur R.

„Hörku leikur og drullu erfitt að spila hérna við Keflavík sem að eru bara flott lið og ég er bara gríðarlega ánægður með stigin" sagði Aron Elís Þrándarson eftir sigurinn í kvöld. 

„Við vorum tilbúnir í þessa baráttu um seinni bolta og þetta sem þarf til. Grasið er bara erfitt en samt alveg hægt að spila á því og mér fannst við svona ná nokkrum augnablikum í leiknum þar sem við spiluðum vel" 

„Keflavík er bara hörku fínt lið og þeir munu fá fullt af stigum hérna í sumar" 

Keflavík náði á köflum að þrýsta liði Víkinga svolítið aftarlega og þá skipti máli að halda haus. 

„Það er bara þannig í fótboltaleikjum að stundum þarftu bara að leggjast niður, sama á móti hverjum. Keflavík er bara gott lið og þeir setja mikið af boltum í teiginn þegar þeir geta og þá er það bara að verjast og skalla þetta í burtu" 

Aron Elís Þrándarson hefur glímt við meiðsli undanfarið ár en hann sleit krossband í upphafi móts síðasta sumar. 

„Ég er þreyttur núna. Þetta er búið að vera gríðarlega erfið meiðsli og ég er búin að vera díla við smá bakslög á undirbúningstímabilinu og líður ágætlega núna þannig það er bara kærkomið að komast inn á völlinn aftur" sagði Aron Elís Þrándarson.


Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 5 4 1 0 13 - 4 +9 13
3.    Breiðablik 5 3 2 0 8 - 2 +6 11
4.    Fram 5 3 1 1 15 - 9 +6 10
5.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
6.    Stjarnan 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    ÍA 5 1 2 2 6 - 10 -4 5
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    Keflavík 5 1 1 3 6 - 10 -4 4
11.    FH 5 0 1 4 8 - 15 -7 1
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner