Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 15:28
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Milan tapaði gegn nýliðunum - Jafnt í Bologna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fyrstu tveimur leikjum dagsins er lokið í efstu deild á Ítalíu þar sem nýliðar Sassuolo lögðu AC Milan að velli.

Domenico Berardi er kominn aftur í byrjunarliðið eftir leikbann og skoraði laglegt mark til að taka forystuna strax á fimmtu mínútu eftir einfalda sendingu frá Armand Laurienté.

Enski miðvörðurinn Fikayo Tomori lét reka sig af velli á 24. mínútu þegar honum tókst að næla í sitt seinna gula spjald fyrir taktískt brot á Laurienté til að stöðva skyndisókn. Sjáðu atvikið

Staðan var 1-0 í hálfleik og gerði Max Allegri taktíska breytingu á liði Milan í leikhlé en lærlingar hans réðu ekki við ellefu heimamenn. Laurienté tvöfaldaði forystu heimamanna eftir frábært þríhyrningsspil við Kristian Thorstvedt strax í upphafi síðari hálfleiks en tókst ekki að bæta fleiri mörkum við leikinn, svo lokatölur urðu 2-0. Thorstvedt átti einnig stóran þátt í fyrra marki leiksins.

Sassuolo siglir lygnan sjó um miðja deild, sex stigum frá mögulegu evrópusæti þegar þrjár umferðir eru eftir, á meðan Milan situr í þriðja sæti. Milan er í góðri stöðu í baráttunni um meistaradeildarsæti en gæti þurft tvo sigra úr síðustu þremur leikjunum til að tryggja sætið.

Fyrr í dag áttust Bologna og Cagliari við en hvorugu liði tókst að skora í nokkuð jöfnum slag og afar tíðindalitlum slag.

Sassuolo 2 - 0 Milan
1-0 Domenico Berardi ('5 )
2-0 Armand Lauriente ('47 )
Rautt spjald: Fikayo Tomori, Milan ('24)

Bologna 0 - 0 Cagliari


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 25 4 5 80 31 +49 79
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Milan 35 19 10 6 48 29 +19 67
4 Juventus 34 18 10 6 57 29 +28 64
5 Como 35 17 11 7 59 28 +31 62
6 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Bologna 35 14 7 14 42 41 +1 49
9 Sassuolo 35 14 7 14 43 44 -1 49
10 Lazio 34 12 12 10 37 33 +4 48
11 Udinese 35 13 8 14 43 46 -3 47
12 Parma 34 10 12 12 25 40 -15 42
13 Torino 35 11 8 16 39 58 -19 41
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 34 8 13 13 38 45 -7 37
16 Cagliari 35 9 10 16 36 49 -13 37
17 Lecce 35 8 8 19 24 47 -23 32
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 34 3 10 21 23 56 -33 19
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner
banner
banner