Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 19:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Daníel innsiglaði sigur Víkinga - Mögnuð endurkoma hjá Fram
Valdimar Þór
Valdimar Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kennie Chopart
Kennie Chopart
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmeistarar Víkinga heimsóttu nýliða Keflavíkur í Bestu deildinni í dag. Gestinrir náðu forystunni þegar Gunnar Vatnhamar skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Viktori Örlygi Andrasyni.

Keflavík var nálægt því að jafna metin þegar Þorlákur Breki Baxter átti skot að marki en Víkingar björguðu í horn. Upp úr hornspyrnunni kom Marin Brigic boltanum yfir línuna af stuttu færi og jafnaði metin.

Keflvíkingar vildu fá vítaspyrnu eftir klukkutíma leik þegar Stefan Ljubicic féll í teignum eftir viðskipti við Gunnar Vatnhamar en ekkert dæmt.

Víkingar settu pressu á Keflvíkinga seint í seinni hálfleiknum og það skilaði sér þegar Daníel Hafsteinsson lagði upp á Valdimar Þór Ingimundarson sem kom Víkinguma aftur yfir.

Daníel Hafsteinsson innsiglaði sigur Víkinga með marki í uppbótatíma.

Það var markaveisla þegar FH fékk Fram í heimsókn í fyrsta heimaleik liðsins í sumar. Adolf Daði Birgisson kom FH-ingum yfir snemma leiks eftir mikinn atgang inn á teignum. Ægir Jarl Jónasson jafnaði metin fyrir Fram strax í kjölfarið þegar hann skoraði á opið markið eftir undirbúning Vuk Oskars Dimitrijevic.

Leikurinn var þó ekki lengi jafn því Tómas Orri Róbertsson kom FH aftur yfir aðeins fjórum mínútum síðar. Úlfur Ágúst Björnsson tvöfaldaði forystu FH undir lok fyrri hálfleiks.

Framarar gáfust ekki upp og unnu magnaðan endurkomusigur. Þorri Stefán Þorbjörnsson kom liðinu á bragðið snemma í seinni hálfleik. Kennie Chopart jafnaði metin eftir rúmlega klukkutíma leik og tryggði liðinu sigurinn stuttu síðar. Fred Saraiva lagði upp öll þrjú mörkin í seinni hálfleik.

Keflavík 1 - 3 Víkingur R.
0-1 Gunnar Vatnhamar ('20 )
1-1 Marin Brigic ('33 )
1-2 Valdimar Þór Ingimundarson ('78 )
1-3 Daníel Hafsteinsson ('92 )
Lestu um leikinn

FH 3 - 4 Fram
1-0 Adolf Daði Birgisson ('5 )
1-1 Ægir Jarl Jónasson ('7 )
2-1 Tómas Orri Róbertsson ('11 )
3-1 Úlfur Ágúst Björnsson ('45 )
3-2 Þorri Stefán Þorbjörnsson ('51 )
3-3 Kennie Knak Chopart ('64 )
3-4 Kennie Knak Chopart ('72 )
Lestu um leikinn
Slapp
banner
banner
banner