Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   mán 04. maí 2026 13:08
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Chelsea og Forest: 18 ára byrjar sinn fyrsta leik fyrir bláliða
Hinn 18 ára gamli Jesse Derry.
Hinn 18 ára gamli Jesse Derry.
Mynd: Chelsea
Reece James.
Reece James.
Mynd: EPA
Það er frídagur á Bretlandseyjum í dag og leikur Chelsea og Nottingham Forest hefst klukkan 14:00. Chelsea er í Evrópubaráttunni en er í níunda sæti eftir fimm tapleiki í röð. Forest er aðeins þremur stigum frá fallsæti.

Leikurinn var færður vegna þátttöku Forest í undanúrslitum Evrópudeildarinnar, þar sem liðið mætir Aston Villa

Jesse Derry, 18 ára sóknarleikmaður Chelsea, byrjar sinn fyrsta aðalliðsleik í fjarveru Pedro Neto og Alejandro Garnacho sem eru ekki í hópnum.

Cole Palmer byrjar einnig en hann missti af síðasta leik og var á bekknum þar á undan þar sem hann var að glíma við smávægileg meiðsli aftan í læri. Varnarmennirnir Levi Colwill og Reece James snúa aftur á bekkinn eftir meiðsli.

Vitor Pereira gerir átta breytingar milli Evrópuleikja. Chris Wood, Eliot Anderson og Morgan Gibbs-White eru meðal leikmanna sem eru á bekknum hjá Forest.

Byrjunarlið Chelsea: Sanchez, Gusto, Chalobah, Tosin, Cucurella, Caicedo, Lavia, Palmer, Derry, Fernandez, Joao Pedro.

(Varamenn: Jörgensen, Colwill, Hato, James, Fofana, Acheampong, Essugo, Andrey Santos, Delap)

Nottingham Forest: Sels, Abbott, Morato, Jair Cunha, Netz, Yates, McAtee, Dominguez, Bakwa, Igor Jesus, Awoniyi

Varamenn: Ortega, Williams, Milenkovic, Anderson, Moreira, Hutchinson, Gibbs-White, Lucca, Wood)



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 36 11 11 14 38 47 -9 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner