Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óli Skúla: Hefur lengi verið bendlað okkur við allskonar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik var mikið orðað við framherja fyrir lok félagaskiptagluggans en ekkert varð úr því að félagið nældi í einn slíkan.

Félagið ræddi við Árna Vilhjálmsson sem spilar í Sádí-Arabíu og þá ræddi Breiðablik einnig við Sebastian Haugland en hann fór að lokum til Þórs.

Kristófer Ingi Kristinsson er framherji liðsins en hann skoraði og lagði upp í 2-1 sigri á ÍBV í gær. Hann hefur komið að fjórum mörkum í fyrstu fimm leikjunum.

„Það hefur lengi verið bendlað okkur við allskonar. Glugginn er lokaður núna, eins og ég er búinn að segja lengi þá erum við mjög ánægðir með hópinn. Kristó er búinn að standa sig frábærlega, frábær aftur í dag, með mark og stoðsendingu," sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari liðsins, eftir leikinn gegn ÍBV.

„Það er klárt að við eigum meira inni, sóknarlega sérstaklega. Við gerðum vel í seinni hálfleik á móti Þór sérstaklega og hérna ágætlega á köflum. Það býr mikið í þessu liði og það er okkar þjálfarana að ná því fram."
Óli Skúla: Til skammar og hrikalegt fyrir Eyjamenn að þetta sé staðan
Slapp
banner
banner
banner