Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 17:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Veit ekki hver einkenni Slot eru"
Mynd: EPA
Daniel Sturridge, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur á Sky Sports, gagnrýndi Arne Slot eftir tap liðsins gegn Man Utd í dag.

„Þetta er áhyggjuefni. Það sem veldur mér áhyggjum er stöðugleikinn í skyndisóknunum sem þeir fá á sig. Enginn á miðjunni eða sókninni sem stöðvar sóknirnar ofar á vellinum,“ sagði Sturridge.

„Það eru engin einkenni, þeir þurfa að byggja upp lið sem hefur einkenni Slot en núna er ég ekki viss um hver þau eru. Við þekktum einkenni Klopp. Við sjáum lið Slot halda í boltann en aðeins kerfisbundnara. Maður horfir í tölfræðina á þessu tímabili og hún er mun lægri á öllum sviðum."

Sturridge treystir Slot til að snúa blaðinu við.

„Aðalatriðið fyrir Arne Slot er að laga vandamálin á þessu tímabili. Maður verður að treysta honum til þess. Hann vann úrvalsdeildina, hann hefur ekki verið eins góður á þessu tímabili en þeir eru í topp fjórum," sagði Sturridge.

„Þeir geta náð Meistaradeildarsæti, hópað sig saman aftur, ákveðið hvaða leikmenn eru með þér í þessu. Maður verður að gefa honum tækifæri til að innleiða hugmyndafræðina."
Slapp
banner
banner