Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 14:41
Ívan Guðjón Baldursson
Ekki sannfærður um að Iraola sé rétti maðurinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fótboltasérfræðingurinn Roy Keane, sem er goðsögn hjá Manchester United og hefur einnig starfað sem þjálfari, er ekki sannfærður um að Andoni Iraola sé rétti maðurinn til að taka við Manchester United í sumar.

Það eru ýmsir þjálfarar sem koma til greina í starfið hjá Man Utd og er Michael Carrick, núverandi bráðabirgðaþjálfari, einn þeirra. Iraola hefur einnig verið nefndur til sögunnar ásamt nokkrum öðrum þjálfurum sem eru þó taldir vera neðar á óskalista stjórnenda félagsins.

Þar má helst nefna Julian Nagelsmann, þjálfara þýska landsliðsins, og Unai Emery, þjálfara Aston Villa.

Iraola verður án starfs þegar samningur hans við Bournemouth rennur út í sumar, en hann hefur gert magnaða hluti við stjórnvöl félagsins.

„Ég er ekki viss um að Iraola sé búinn að gera nægilega mikið á ferlinum til að taka við. Ég veit að United er að skoða hann og að samningurinn hans er að renna út, en get ég séð hann fyrir mér sem aðalþjálfara Manchester United? Líklegag ekki," segir Keane.

„Aðstæður hjá Bournemouth eru allt öðruvísi heldur en aðstæður hjá Man Utd. Hjá einu félaginu er markmiðið alltaf að berjast um titla á meðan hjá hinu félaginu er markmiðið að standa sig vel þrátt fyrir sölur á lykilmönnum á milli ára.

„Það er allt öðruvísi pressa hjá Bournemouth heldur en hjá Man Utd. Ég er ekki viss um að Iraola sé tilbúinn fyrir starfið í Manchester þó að hann sé búinn að gera stórkostlega hluti í Bournemouth."

Slapp
banner
banner
banner