Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha, sem hefur heillað með enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool á fyrsta tímabili sínu getur valið um að spila fyrir fjórar þjóðir, en hann hefur ekki enn gert upp hug sinn hvaða þjóð hann ætlar að spila fyrir.
Nguomoha er uppalinn á Englandi og fór í gegnum akademíuna hjá Chelsea áður en Liverpool stal honum árið 2024.
Hann hefur spilað fyrir yngri landslið Englands síðustu ár og er nú fastamaður í U19 ára landsliðinu.
Vængmaðurinn er þó með marga kosti í stöðunni. Foreldrar hans eiga rætur sínar að rekja til Nígeríu, Frakklands og Gvadelúpeyjar, og má hann því spila fyrir allar þessar þjóðir.
Síðustu ár hafa Englendingar misst tvær risastjörnur í önnur landslið. Jamal Musiala, sem hefur spilað stóra rullu hjá Bayern München, valdi Þýskaland eftir að hafa spilað með yngri landsliðum Englands og þá ákvað Michael Olise, annar leikmaður Bayern, að velja Frakkland fram yfir England.
Musiala er fæddur í Þýskalandi og bjó þar til sjö ára aldurs áður en hann flutti til Englands. Sagan er aðeins öðruvísi með Olise sem fæddist og ólst upp á Englandi áður en hann fór síðan til Bayern frá Crystal Palace árið 2024, þá 22 ára gamall.
England á því hættu á því að missa enn eina upprennandi stjörnuna í annað landslið. Gvadelúpeyjar er nánast útilokað og þá kemur Nígería aðeins til greina ef hann nær ekki að nýta hæfileika sína til fulls.
Valið er þá á milli Englands og Frakklands. Þá er stóra spurningin sú: Mun hann velja heimaland sitt eða fetar hann í fótspor Olise?


