Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 12:40
Ívan Guðjón Baldursson
U16 tapaði eftir vítaspyrnukeppni
Mynd: KSÍ
U16 landslið karla lék við Finnland í gær og urðu lokatölur 2-2 eftir venjulegan leiktíma svo fara þurfti í vítaspyrnukeppni.

Sigurður Nói Jóhannsson, leikmaður KA, og Emil Eldar Takao Árnason, sem leikur með unglingaliði Hammarby í Svíþjóð, skoruðu mörk Íslands í jafnteflinu.

Finnar unnu svo vítakeppnina 5-3 til að fara með sigur af hólmi í viðureigninni.

Þjóðirnar taka þátt á þróunarmóti UEFA í Finnlandi og er næsti leikur gegn Lettlandi í fyrramálið.
Slapp
banner
banner
banner