Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 14:51
Elvar Geir Magnússon
„Rúinn sjálfstrausti eftir dvöl sína í Króatíu“
Danijel Djuric.
Danijel Djuric.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Danijel Djuric hefur ekki verið að finna sig í búningi KA og var tekinn af velli um miðjan seinni hálfleik í 1-0 sigrinum gegn Þór í Bestu deildinni í gær.

„Danijel Dejan Djuric er ekki að finna sig í treyju KA en sem komið er og er skugginn af þeim skemmtikrafti sem hann var með Víkingum. Rúinn sjálfstrausti eftir dvöl sína í Króatíu mögulega en það er vonandi fyrir alla að hann finni sína fjöl fljótlega," skrifaði Sverrir Örn Einarsson, fréttamaður Fótbolta.net, í skýrslu um leikinn.

Lestu um leikinn: Þór 0 -  1 KA

Hinn 23 ára gamli Djuric kom til KA frá króatíska liðinu Istra 1961 en þar voru tækifærin af skornum skammti.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var spurður út í erfiða byrjun Djuric hjá KA og segir hann leikmanninn eiga inni.

„Fólk þarf að skilja það, þegar menn koma hingað og hafa ekki verið að spila lengi þá þurfa menn tíma til að aðlagast, komast í leikfor og kynnast nýjum þjálfara og nýju kerfi. Þetta tekur tíma. Hann veit það sjálfur að hann á inni. Svo lengi sem hann leggur sig fram þá bakka ég hann upp og hann lagði sig fram í dag," sagði Haddi.

Færeyski sóknarmaðurinn Jóan Símun Edmundsson var ekki í leikmannahópi KA í gær og var Haddi spurður út í hans fjarveru.

„Hann hefur verið í veseni með mjöðmina á sér og fengið sprautu við því. Við vorum með marga heila í dag og hann var ekki í hóp. Ég valdi að hafa hann ekki þar sem hann er ekki alveg 100%," svaraði Hallgrímur en viðtalið er í heild hér að neðan.
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner