Arteta segir að besta útgáfan af Bukayo Saka sé komin aftur eftir að hafa spilað í gegnum meiðsli stóran hluta tímabils.
Mikel Arteta var kátur eftir mikilvægan sigur Arsenal gegn Fulham í gær og ræddi meðal annars um Myles Lewis-Skelly og Bukayo Saka að leikslokum.
Hinn bráðefnilegi Lewis-Skelly hefur ekki fengið mikinn spiltíma á leiktíðinni eftir að hafa verið mikið notaður á síðustu leiktíð. Piero Hincapié var keyptur í sumar og hefur nánast eignað sér vinstri bakvarðarstöðuna.
Lewis-Skelly byrjaði á miðjunni hjá Arsenal í gær og stóð sig frábærlega í Lundúnaslagnum. Arteta var spurður hvers vegna hann sé fyrst núna að nota Lewis-Skelly á miðjunni.
„Ég veit það ekki! Ég hefði líklega átt að nota hann fyrr í þessari stöðu en þetta var samt stór áhætta. Hvað hefði gerst hefðum við tapað leiknum? Hvað hefði fólk sagt um þessa ákvörðun?" svaraði Arteta.
„Myles á þetta fyllilega skilið, þetta er búið að vera erfitt tímabil fyrir hann. Hann var stórkostlegur á síðustu leiktíð en hefur svo aðeins átt erfitt uppdráttar. Þrátt fyrir mótlæti hefur hann sýnt fagmannlega hegðun, hann sýnir hógværð og er mjög einbeittur. Hann þurfti að sýna þolinmæði og í dag var hann stórkostlegur."
Arteta snéri sér svo að Bukayo Saka sem virðist vera búinn að ná sér að fullu eftir meiðsli. Saka hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og sýndi frábæra takta gegn Fulham. Hann var stórhættulegur, skoraði og lagði upp.
„Hann er kominn aftur úr meiðslum á mikilvægasta tímapunkti leiktíðarinnar. Hann er ferskur bæði líkamlega og andlega," sagði Arteta.
„Sársaukinn sem hann fann sífellt fyrir er farinn. Það var allt annað að sjá hann spila fótbolta án þess að finna fyrir sársauka. Hann var rólegur og það var frábært flæði á hans leik. Við erum komnir aftur með Bukayo sem við þekkjum svo vel."
02.05.2026 20:35
Arteta: Sýndum úr hverjum við erum gerðir
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 35 | 23 | 7 | 5 | 67 | 26 | +41 | 76 |
| 2 | Man City | 33 | 21 | 7 | 5 | 66 | 29 | +37 | 70 |
| 3 | Man Utd | 34 | 17 | 10 | 7 | 60 | 46 | +14 | 61 |
| 4 | Liverpool | 34 | 17 | 7 | 10 | 57 | 44 | +13 | 58 |
| 5 | Aston Villa | 34 | 17 | 7 | 10 | 47 | 42 | +5 | 58 |
| 6 | Bournemouth | 35 | 12 | 16 | 7 | 53 | 52 | +1 | 52 |
| 7 | Brentford | 35 | 14 | 9 | 12 | 52 | 46 | +6 | 51 |
| 8 | Brighton | 35 | 13 | 11 | 11 | 49 | 42 | +7 | 50 |
| 9 | Chelsea | 34 | 13 | 9 | 12 | 53 | 45 | +8 | 48 |
| 10 | Fulham | 35 | 14 | 6 | 15 | 44 | 49 | -5 | 48 |
| 11 | Everton | 34 | 13 | 8 | 13 | 41 | 41 | 0 | 47 |
| 12 | Sunderland | 35 | 12 | 11 | 12 | 37 | 46 | -9 | 47 |
| 13 | Newcastle | 35 | 13 | 6 | 16 | 49 | 51 | -2 | 45 |
| 14 | Crystal Palace | 34 | 11 | 10 | 13 | 36 | 40 | -4 | 43 |
| 15 | Leeds | 35 | 10 | 13 | 12 | 47 | 52 | -5 | 43 |
| 16 | Nott. Forest | 34 | 10 | 9 | 15 | 41 | 45 | -4 | 39 |
| 17 | West Ham | 35 | 9 | 9 | 17 | 42 | 61 | -19 | 36 |
| 18 | Tottenham | 34 | 8 | 10 | 16 | 43 | 53 | -10 | 34 |
| 19 | Burnley | 35 | 4 | 8 | 23 | 35 | 71 | -36 | 20 |
| 20 | Wolves | 35 | 3 | 9 | 23 | 25 | 63 | -38 | 18 |






