Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. maí 2022 19:27
Victor Pálsson
Ancelotti staðfestir nafn tveggja leikmann sem spila úrslitin
Mynd: EPA

Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, hefur staðfest nafn tveggja leikmanna sem munu spila úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Liverpool.

Leikmennirnir tveir eru þeir Rodrygo og Fede Valverde en þeir hafa verið á gríðarlegri siglingu með Real undanfarnar vikur.

„Báðir þessir leikmenn munu spila úrslitaleikinn, það er klárt," sagði Ancelotti í gær þegar hann var spurður út í hvort frammistaða leikmannana væri að gefa honum ákveðinn hausverk þegar kom að liðsvalinu.

Þetta svar Ancelotti kom nokkuð á óvart eða hversu hreinskilinn hann var því úrslitaleikurinn er ekki spilaður fyrr en þann 28. maí.

Svarið gæti þó verið nokkuð villandi en það er óvíst hvort Ancelotti eigi við að leikmennirnir muni byrja leikinn sjálfan eða koma við sögu á einhverjum tímapunkti.

Það sama er ekki hægt að segja um þá Gareth Bale og Eden Hazard sem eru ólíklegir til að koma við sögu í leiknum sem er gegn Liverpool líkt og árið 2018.

Rodrygo hefur verið virkilega góður með Real undanfarið og hjálpaði liðinu mikið í undanúrslitunum gegn Manchester City í leik sem vannst í framlengingu.


Athugasemdir
banner