Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. júní 2022 14:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Marcelo: Ég er ekki hættur
Á blaðamannafundinum í gær.
Á blaðamannafundinum í gær.
Mynd: EPA
„Ég hugsa ekki mikið um framtíðina, líður vel í núinu. En það er mjög erfitt að yfirgefa félagið sem þú hefur verið hjá allt þitt líf," sagði Brasilíumaðurinn Marcelo á blaðmannafundi í gær. Marcelo var að yfirgefa Real Madrid eftir fimmtán ár hjá félagnu.

„Ég er ekki hræddur um framtíðina. Ég hef gert það sem ég ætlaði mér hér og ég er spenntur fyrir framhaldinu. Ég er ekki hræddur við óvissuna, heldur spenntur hvað tekur við."

Marcelo ætlar ekki að hætta og vill frekar spila áfram í Evrópu en að fara til Brasilíu. Hann er 34 ára og lék 546 leiki fyrir Real. Alls vann 25 titla sem leikmaður félagsins.

„Ég er ekki að fara leggja skóna á hilluna. Mér finnst ég ennþá geta spilað. Að mæta Real Madrd? Það yrði ekkert vandamál."

„Ég fer héðan með hausinn uppi. Fjölskyldan er mjög stolt af mér. Ég er mjög heppinn,"
sagði Marcelo
Athugasemdir
banner
banner