Stjarnan 0 - 4 KR
0-1 Amin Cosic ('27 )
0-2 Alexander Rafn Pálmason ('37 )
0-3 Amin Cosic ('64 )
0-4 Alexander Rafn Pálmason ('71 )
0-4 Örvar Eggertsson ('78 , misnotað víti)
Rautt spjald: Arnór Ingvi Traustason, KR ('77)
Lestu um leikinn
0-1 Amin Cosic ('27 )
0-2 Alexander Rafn Pálmason ('37 )
0-3 Amin Cosic ('64 )
0-4 Alexander Rafn Pálmason ('71 )
0-4 Örvar Eggertsson ('78 , misnotað víti)
Rautt spjald: Arnór Ingvi Traustason, KR ('77)
Lestu um leikinn
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 4 KR
Stjarnan og KR áttust við í undanúrslitum Lengjubikars karla en það munu örugglega einhverjir endurhugsa spár sínar fyrir Bestu deildina eftir þennan leik.
Stjarnan mætti með mjög vel mannað lið í leikinn en þeir sáu ekki til sólar gegn sprækum KR-ingum.
KR var með yfirburði í leiknum og leiddi 0-2 að loknum fyrri hálfleiknum. Amin Cosic og Alexander Rafn Pálmason skoruðu mörkin.
Amin bætti við öðru marki eftir rétt rúmlega klukkutíma leik og Alexander Rafn, sem er fæddur árið 2010, bætti svo við öðru marki sínu.
Arnór Ingvi Traustason, sem lék mjög vel inn á miðju KR, fékk að líta rauða spjaldið á 77. mínútu en það kom ekki að sök; afar öruggur sigur KR staðreynd.
Þór og Fylkir mætast í hinum undanúrslitaleiknum og spila þar um að mæta KR í úrslitum.
Athugasemdir


