Það var á tímapunkti ansi sérstök stemning á Malbikstöðinni að Varmá, keppnisvellinum í Mosfellsbæ, í kvöld þar sem Álafoss og Kría öttu kappi í Lengjubikarnum. Þegar um stundarfjórðungur lifði leiks slökknaði á flóðljósunum á vellinum.
Starfsmaður í íþróttahúsinu var að ljúka sinni vakt og slökkti á ljósunum án þess að átta sig á því að þar var leikur í fullum gangi. Dómari leiksins var ekkert sérstaklega kátur með stöðu mála, en þetta er samkvæmt heimildum Fótbolta.net ekki í fyrsta skiptið sem svona atvik kemur upp á vellinum. Strax var hringt af vellinum og inn í íþróttahús og óskað eftir því að kveikt yrði aftur á ljósunum.
Menn sem voru kunnugir staðháttum dóu ekki ráðalausir á meðan beðið var eftir því að fá flóðljósin í gang. Það er risaskjár á vellinum og var leik Real Madrid og Manchester City í Meistaradeildinni skellt á skjáinn á meðan beðið var eftir að kveikt yrði á ljósunum. Leikur Álafoss og Kríu var stopp í um stundarfjórðung.
Ljósin á vellinum eru nokkuð gömul og þurftu sinn tíma til að hitna. Leikmenn beggja liða hópuðust saman við hornið á vellinum og horfðu á beina útsendingu SÝN Sport frá risaleiknum.

Lokatölur í leiknum urðu 5-2 Álafoss í vil en staðan þegar hlé þurfti að gera á leiknum var 3-2 fyrir heimamönnum. Álafoss er með fullt hús stiga eftir fjóra leiki í riðli 1 í C-deild Lengjubikarsins og Kría er með þrjú stig eftir þrjá leiki.
Leikur Real Madrid og Manchester City endaði með 3-0 sigri heimamanna í Real og skoraði Federico Valverde öll mörkin. Um fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitunum var að ræða og mætast þau á heimavelli City í seinni leiknum.
Athugasemdir