Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   fim 12. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin í dag - Stórleikir fyrir þrjú Íslendingalið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru spennandi leikir á dagskrá í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar þar sem allir fyrri leikirnir verða spilaðir í dag og í kvöld.

Tvö Íslendingalið eiga heimaleiki í dag þegar Panathinaikos og Lille taka á móti Real Betis og Aston Villa, áður en Elías Rafn Ólafsson og félagar í FC Midtjylland heimsækja Nottingham Forest.

Sverrir Ingi Ingason var ekki með í síðasta leik Panathinaikos í grísku deildinni vegna meiðsla en gæti verið með gegn Betis í kvöld.

Hákon Arnar Haraldsson hefur byrjað síðustu þrjá leiki Lille í röð og verður líklega í byrjunarliðinu gegn Aston Villa.

Í fyrri leikjum dagsins eigast Bologna og AS Roma við í ítölskum slag á meðan Stuttgart spilar við Porto.

Í kvöld er svo mesta spennan á Spáni þegar Celta Vigo mætir Lyon og auðvitað í Skírisskógi þar sem Elíasi bíður afar erfitt verkefni.

Leikir dagsins
17:45 Panathinaikos - Real Betis
17:45 Stuttgart - Porto
17:45 Bologna - Roma
17:45 Lille - Aston Villa
20:00 Ferencvaros - Braga
20:00 Genk - Freiburg
20:00 Celta Vigo - Lyon
20:00 Nott. Forest - Midtjylland
Athugasemdir
banner