Það er spennandi Meistaradeildarkvöld framundan þar sem Liverpool og Barcelona eru með bakið upp við vegg. En meðan við bíðum eftir þeirri veislu skulum við líta inn í slúðurheima.
Liverpool og Manchester United vilja fá David Raum (27), fyrirliða RB Leipzig, Njósnarar þessara ensku stórliða hafa skilað jákvæðum skýrslum eftir að hafa skoðað þýska vinstri bakvörðinn. (Teamtalk)
Arsenal og Chelsea leiða kapphlaupið um vinstri bakvörðinn Lewis Hall (21). Newcastle mun þó ekki hleypa honum burt auðveldlega. (Caught Offside)
Bart Verbruggen (23), hollenskur markvörður Brighton, gæti fært sig um set í sumar en hann er að skoða möguleika sína. (Florian Plettenberg)
Chelsea vill fá brasilíska vængmanninn William Gomes (20) frá Porto fyrir næsta tímabil. (Sport Witness)
Liverpool íhugar að bjóða brasilíska markverðinum Alisson (33) nýjan samning á næsta tímabili. (Football Insider)
Georginio Wijnaldum (35), fyrrum miðjumaður Liverpool og Paris St-Germain, vill snúa aftur í ensku úrvalsdeildina á næsta tímabili. Samningur hans við Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu rennur út í sumar. (Sky Sports)
Swansea hefur sett 15 milljóna punda verðmiða á slóvenska sóknarmanninn Zan Vipotnik (24) sem er markahæstur í Championship-deildinni. Brighton hefur sýnt honum áhuga. (Football Insider)
Stjórn Newcastle er í sambandi við Eddie Howe í viðræðum um áætlanir fyrir leikmannamarkaðinn í sumar. Óvissa ríkir um framtíð hans á St James' Park. (The I)
Real Madrid mun hlusta á tilboð í spænska framherjann Gonzalo Garcia (22) í sumar en ætlar ekki að selja brasilíska sóknarmanninn Endrick (19) sem er á láni hjá Lyon. (The Athletic)
Juventus ætlar að reyna að selja belgíska framherjann Lois Openda (26) samstundis eftir að vera skyldugt til að kaupa hann í sumar þegar lánssamningur hans frá RB Leipzig rennur út. (Fabrizio Romano)


