Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. október 2020 06:00
Aksentije Milisic
Milik getur ekki beðið eftir því að yfirgefa Napoli
Mynd: Getty Images
Arkadiusz Milik, leikmaður Napoli, sem er undir smásjá Tottenham og Everton, segir að hann getur ekki beðið eftir því að félagsskiptaglugginn opni og hann geti yfirgefið liðið.

Þessi pólski landsliðsmaður átti að verða varaskeifa fyrir Harry Kane hjá Tottenham og reyndi liðið að fá hann fyrir 26 milljónir punda. Það tókst hins vegar ekki fyrir lok gluggans.

Tottenham fékk Carlos Vinicius á láni frá Benfica en Tottenham hefur þó enn áhuga á Milik, eins og Everton.

Samningur Milik hjá Napoli rennur út næsta sumar. Gennaro Gattuso, þjálfari Napoli, hefur ekki haft hann í leikmannahóp sínum undanfarið.
Athugasemdir
banner