Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 15. febrúar 2021 09:42
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári: Leikmenn Liverpool eru mannlegir
Mynd: Getty Images
„Þeir eru mannlegir," sagði Eiður Smári Guðjohnsen í Vellinum á Síminn Sport í gær þar sem rætt var um fremstu leikmenn Liverpool.

Margir leikmenn Liverpool hafa fengið litla sem enga hvíld undanfarin ár.

„Það er spurning hvort Klopp hefði átt að hugsa lengra fram í tímann og fylgjast með mínútum leikmanna og hugsa hvenær hann geti gefið þeim frí í staðinn fyrir að lenda í því að 3-4 leikmenn séu ekki með sama orkustig á sama tíma."

„Það eru fimm meiddir og síðan ertu með stólpa í liðinu sem eru ekki 100% og það eru ekki mörg lið sem ráða við það," sagði Eiður.

Gylfi Einarsson benti á að Liverpool sé ekki að fá mikið af mörkum frá öðrum leikmönnum en fremstu mönnum.

„Þegar Salah er ekki að skora þá þarftu að fá mörk af miðjunni og það er ekki að gerast," sagði Gylfi.



Athugasemdir
banner