Kári Árnason var ekki með gegn Belgum á miðvikudag vegna meiðsla á tá.
,,Þetta brákaðist eitthvað. Ég hef ekki fundið mikið fyrir þessu og þetta sleppur alveg," sagði Kári við Fótbolta.net í dag.
,,Þetta brákaðist eitthvað. Ég hef ekki fundið mikið fyrir þessu og þetta sleppur alveg," sagði Kári við Fótbolta.net í dag.
Ísland mætir Tékkum annað kvöld en bæði liðin eru með níu stig eftir þrjá leiki.
,,Þetta er hörkulið og þeir eru líklegri fyrir þennan leik. Við erum litla liðið í þessu þó að kokur hafi gengið vel. Öll lið hafa sín veikleika og þeir eru ekki undantekning á því. Ég met möguleika okkar mjög góða," sagði Kári en íslenska liðið er niðri á jörðinni þrátt fyrir góðan árangur.
,,Við höldum ekki að við séum Barcelona. Við vitum hverjir okkar styrkleikar eru og við spilum á þeim."
Kári, Ragnar Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason og Theodór Elmar Bjarnason hafa spilað í vörn Íslands hingað til í undankeppninni en Ísland hefur ekki fengið á sig mark ennþá.
,,Samband mitt við Ragga er mjög gott og við bökkum hvorn annan mjög vel upp. Elmar hefur komið frábærlega inn og Ari er að vaxa í þessari stöðu."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni. Við biðjumst afsökunar á hljóðtruflunum.





















