mán 16. nóvember 2020 21:44
Brynjar Ingi Erluson
Gattuso við Ghoulam: Mér er alveg sama um Mendes
Gennaro Ivan Gattuso
Gennaro Ivan Gattuso
Mynd: Getty Images
„Mér er alveg sama hvað Jorge Mendes segir," sagði Gennaro Ivan Gattuso, þjálfari Napoli, við Faouzi Ghoulam, er hann sendi hann upp í stúku í 1-0 sigrinum gegn Bologna á dögunum.

Gattuso ákvað að hafa bæði Ghoulam og Mario Rui upp í stúku þrátt fyrir að þeir væru ekki að glíma við meiðsli.

Leikmennirnir æfðu illa fyrir leikinn og var Gattuso ekki ánægður með framlag þeirra. Hann ákvað því að hafa þá utan hóps en taka þá samt með í leikinn og geyma þá upp í stúku.

Ghoulam og Gattuso skiptust á orðum og sést Gattuso segja við hann að honum sé alveg sama um Mendes en þar á hann við Jorge Mendes, sem er umboðsmaður þeirra beggja.

„Þeir voru í stúkunni því þeir voru bara að dunda sér eitthvað á æfingunni. Ég tók þá með í leikinn því það er voðalega þægilegt og auðvelt að leyfa þeim að vera upp í sófa og horfa á leikinn þaðan, " sagði Gattuso við Sky eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner