Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. september 2019 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maguire um samstarf sitt við Lindelöf: Munum bæta okkur
Victor Lindelöf og Harry Maguire. Á myndinni er líka hægri bakvörðurinn Aaron Wan-Bissaka.
Victor Lindelöf og Harry Maguire. Á myndinni er líka hægri bakvörðurinn Aaron Wan-Bissaka.
Mynd: Getty Images
Harry Maguire og Victor Lindelöf eru miðvarðarpar Manchester United. Þeir hafa ekki litið neitt stórkostlega út í upphafi tímabils, en Maguire hefur trú á því að þeir verði sterkari eftir því sem þeir spila fleiri leiki saman.

Maguire var dýrasti varnarmaður sögunnar þegar United borgaði Leicester 80 milljónir punda fyrir hann í sumar.

Lindelöf átti gott tímabil á síðustu leiktíð og hafa hann og Maguire byrjað fyrstu fimm deildarleikina í ensku úrvalsdeildinni saman.

„Þú verður að átta þig á því að svona samstarf byggist á því að spila leiki saman og við erum aðeins búnir að spila fimm leiki saman," sagði Maguire eftir leikinn gegn Leicester, sem United vann 1-0.

„Við munum verða betri. Hann mun skilja mig meira og ég mun skilja hann meira."
Athugasemdir
banner