Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 17. október 2020 23:00
Victor Pálsson
Reyndi að meiða samherja hjá Liverpool - „Annað hvort ég eða hann
Brewitt hér til vinstri.
Brewitt hér til vinstri.
Mynd: Getty
Tom Brewitt, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur viðurkennt það að hann hafi reynt að meiða annan leikmann liðsins á æfingu liðsins.

Brewitt var síðast á mála hjá Morecambe í neðri deildum Englands en hann vildi mikið fá tækifæri hjá Liverpool sem gekk þó aldrei eftir.

Leikmaðurinn barðist um sæti við annan efnilegan á þeim tíma, Daniel Cleary, og reyndi allt mögulegt til að taka sætið af honum fyrir leik gegn Exeter í bikarnum tímabilið 2015-2016.

„Hvað sem þurfti til þá ætlaði ég að gera það. Hvort sem það væri að meiða annan leikmann eða að eyðileggja sambandið, ég myndi gera það," sagði Brewitt.

„Ég var bara það örvæntingarfullur að fá að spila fyrir Liverpool og það er það eina sem ég vildi gera."

„Ég tók ákvörðun, þetta var annað hvort ég eða hann svo ég reyndi að meiða hann á æfingu. Þetta var fyrir jól og í kringum nýtt ár. Ég var alltaf staðsettur við hliðina á honum og sparkaði í hann."

„Ég reyndi ekki að meiða hann illa en reyndi að meiða hann svo ég myndi fá tækifærið en ekki hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner