Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. desember 2022 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Æfingaleikir: Leeds, Palace og Forest unnu öll
Wilfried Zaha skoraði bæði mörk Palace
Wilfried Zaha skoraði bæði mörk Palace
Mynd: Getty Images
Rodrigo Moreno gerði sigurmark Leeds
Rodrigo Moreno gerði sigurmark Leeds
Mynd: Getty Images
Crystal Palace, Leeds United og Nottingham Forest unnu öll æfingaleiki sína í gær en liðin eru núna í lokaundirbúningi áður en enska úrvalsdeildin hefst að nýju.

Leeds vann Real Sociedad, 2-1. Liðið lenti undir snemma leiks áður en Pascal Struijk jafnaði metin. Spænski sóknarmaðurinn Rodrigo tryggði svo sigur í þeim síðari.

Palace lagði Real Valladolid með sömu markatölu, 2-1. Sagan var sú sama þar. Valladolid tók forystuna en í þeim síðari skoraði Wilfried Zaha tvö mörk og það síðara úr vítaspyrnu til að tryggja sigur.

Forest gerði eins og hin úrvalsdeildarliðin og vann Valencia, 2-1. Taiwo Awonyi kom Forest yfir áður en Hugo Duro jafnaði metin fyrir spænska liðið. Emmanuel Dennis gerði svo sigurmark Forest áður en flautað var til leiksloka.

Úrslit og markaskorarar:

Leeds 2 - 1 Real Sociedad
0-1 Martin Zubimendi ('10 )
1-1 Pascal Struijk ('16)
2-1 Rodrigo ('58 )

Crystal Palace 2 - 1 Real Valladolid
0-1 Sergio Leon ('32 )
1-1 Wilfried Zaha ('56 )
2-1 Wilfried Zaha ('75, víti )

Nottingham Forest 2 - 1 Valencia
1-0 Taiwo Awoniyi ('40 )
1-1 Hugo Duro ('58 )
2-1 Emmanuel Dennis ('68 )
Athugasemdir
banner
banner