Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. janúar 2023 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lopetegui ánægður að fá Sarabia - „Góður leikmaður"
Sarabia í leik með Sevilla
Sarabia í leik með Sevilla
Mynd: Getty Images

Wolves kynnti nýjan leikmann rétt fyrir leik liðsins gegn Liverpool í enska bikarnum í gær sem endaði með sigri Liverpool.


Pablo Sarabia er genginn til liðs við félagið frá PSG en Julen Lopetegui stjóri Wolves er ánægður að fá hann til félagsins.

„Sarabia er góður leikmaður. Ég þekki hann, mér finnst hann vera á góðum stað á ferlinum. Hann mun hjálpa okkur að ná aðal markmiðinu sem er að halda okkur frá fallbaráttunni í úrvalsdeildinni. Það verður erfitt en við höfum fengið einn leikmann [Í Sarabia] til að hjálpa okkur," sagði Lopetegui.

Lopetegui tók við liði Sevilla þann 5. júní 2019 og seldi Sarabia þaðan til PSG rúmum mánuði síðar.


Athugasemdir
banner
banner
banner