Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. mars 2021 09:00
Aksentije Milisic
Kjartan Henry meiddur - „Sem betur fer er landsleikjahlé framundan"
Mynd: Esbjerg
Kjartan Henry Finnbogason, framherji Esbjerg í dönsku B-deildinni, er meiddur og verður eitthvað frá á næstunni.

Kjartan meiddist í leiknum gegn Viborg og hann verður því ekki með liðinu í leiknum í kvöld gegn Hobro.

„Sem betur fer er svo landsleikjahlé framundan þar sem ég vonast til þess að tíminn hjálpi mér," sagði Kjartan Henry við heimasíðu félagsins.

Esbjerg er í þriðja sæti deildarinnar, stigi á eftir Silkeborg sem situr í því öðru. Viborg situr á toppi deildarinnar, átta stigum á undan Ólafi Kristjánssyni og lærisvienum hans.


Athugasemdir
banner
banner
banner