Álafoss 1 - 4 Fjölnir
0-1 Viktor Andri Hafþórsson ('30 )
0-2 Aron Fannar Hreinsson ('53, víti )
1-2 Fróði Brooks Kristjánsson ('75 )
1-3 Árni Steinn Sigursteinsson ('86 )
1-4 Aron Fannar Hreinson ('90 )
0-1 Viktor Andri Hafþórsson ('30 )
0-2 Aron Fannar Hreinsson ('53, víti )
1-2 Fróði Brooks Kristjánsson ('75 )
1-3 Árni Steinn Sigursteinsson ('86 )
1-4 Aron Fannar Hreinson ('90 )
Fjölnir komst í kvöld áfram í Mjólkurbikar karla með sigri gegn Álafossi.
Fyrirfram var búist við þægilegum sigri Fjölnismanna og sú varð raunin á endanum.
Það tók Fjölni hálftíma að brjóta ísinn og þar var að verki Viktor Andri Hafþórsson. Aron Fannar Hreinsson kom Fjölni í 0-2 úr vítaspyrnu í byrjun seinni hálfleiks en Álafoss minnkaði muninn þegar stundarfjórðungur var eftir.
Í lokin bættu Grafarvogsbúar við tveimur mörkum og gulltryggðu sigurinn.
Fjölnir leikur í 2. deild í sumar og stefna eflaust á að fara upp úr þeirri deild. Álafoss er í 4. deild.
Athugasemdir



