Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Falldraugurinn eltir Pisa
Mynd: EPA
Pisa situr sem fastast á botni ítölsku deildarinnar eftir tap gegn Torino í dag.

Che Adams var hetja Torino þegar hann skoraði eina markið. Það kom fyrirgjöf á fjær og Marcus Pedersen renndi boltanum fyrir markið þar sem Adams var mættur og skoraði af öryggi.

Pisa er aðeins með 18 stig en liðið gæti verið allt að 12 stigum frá öruggu sæti ef Lecce nær í úrslit gegn Atalanta á morgun. Torino er í 12. sæti með 36 stig.

Cremonese gæti endað í fallsæti eftir umferðina eftir að liðið tapaðii gegn Bologna. Cremonese er í 17. sæti með jafn mörg stig og Lecce sem er í 18. sæti. Bologna er í 8. sæti með 45 stig.

Cremonese 1 - 2 Bologna
0-1 Joao Mario ('3 )
0-2 Jonathan Rowe ('16 )
1-2 Federico Bonazzoli ('90 , víti)
Rautt spjald: ,Youssef Maleh, Cremonese ('90)Lewis Ferguson, Bologna ('90)

Pisa 0 - 1 Torino
0-1 Che Adams ('80 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner