Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ótrúlegt að ekkert lið í Bestu deildinni hafi séð not fyrir Adam Árna"
Mynd: Þróttur
Þróttur gerði sér lítið fyrir og vann ÍBV í vítaspyrnukeppni í Mjólkurbikarnum um helgina.

Adam Árni Róbertsson, sem gekk til liðs við félagið frá Grindavík í vetur, skoraði tvennu í leiknum en hann skoraði einnig gegn Víkingi Ó. í fyrstu umferð.

Lestu um leikinn: ÍBV 4 -  6 Þróttur R.

Hann átti stórkostlegt tímabil með Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar en hann skoraði 14 mörk í 19 leikjum. Gunnar Birgisson og Hörður Magnússon hrósuðu honum í hástert í Bikarkvöldi á RÚV í gær.

„Það er ótrúlegt að ekkert lið í Bestu deildinni hafi séð not fyrir Adam Árna Róbertsson. Hann var frábær í liði Grindavíkur í fyrra, var nánast ástæða þess að liðið fellur ekki," sagði Gunnar.

„Ég er sammála Gunnari varðandi Adam Árna. Ég var að skoða hans tölfræði, þetta er hörkusóknarmaður, það eru ekki svo margir til. Ég held að hann eigi eftir að raða inn fyrir Þrótt," sagði Höddi.
Slapp
banner
banner
banner