Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   mán 06. apríl 2026 16:43
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Misstigu sig gegn föllnu liði Wednesday
Jordan Ayew skoraði jöfnunarmark Leicester í leik sem refirnir áttu að vinna
Jordan Ayew skoraði jöfnunarmark Leicester í leik sem refirnir áttu að vinna
Mynd: Leicester
Fallbaráttulið Leicester City þurfti að sætta sig við aðeins eitt stig er liðið heimsótti Sheffield Wednesday í ensku B-deildinni í dag.

Sheffield Wednesday hefur verið lang slakasta lið í sögu ensku B-deildarinnar.

Fall liðsins var staðfest í febrúar og hafði það vissulega mikil áhrif að átján stig voru dregin af liðinu vegna fjárhagsvanda félagsins.

Spilamennska liðsins hefur ekki hjálpað og ef horft er á stigafjölda þá hefur það aðeins náð í nítján stig allt tímabilið og er enn í mínus.

Jerry Yates kom Wednesday í óvænta forystu á 2. mínútu en Leicester var með yfirhöndina eftir það. Gestirnir fengu urmul af færum en jöfnunarmarkið kom ekki fyrr en á 84. mínútu. Jordan Ayew gerði það en lengra komust þeir ekki.

Ekki hægt að segja að Ayew hafi bjargað stigi. Þetta eru tvö töpuð stig hjá Leicester sem er í þriðja neðsta sæti með 22 stig á meðan Wednesday er í mínus fimm stigum á botninum.

Toppbaráttulið Millwall tapaði fyrir Norwich, 2-1, á heimavelli. Millwall-liðið gat gert sig gildandi í baráttu um sæti í úrvalsdeildina og komust í 1-0 forystu með makri Mihailo Ivanovic, en Norwich svaraði með tveimur mörkum á þrettán mínútum og fóru því glaðir heim frá Lundúnum.

Millwall er í 3. sæti með 72 stig, ellefu stigum frá toppliði Coventry City.

Blackburn Rovers, lið Andra Lucasar Guðjohnsen, gerði markalaust jafntefli við WBA. Andri Lucas var ekki með vegna meiðsla, en Blackburn er í 19. sæti með 47 stig.

Roy Hodgson vann annan leik sinn með Bristol City sem mörðu 1-0 sigur á Sheffield United. Draumabyrjun hjá Hodgson sem mun stýra Bristol út þetta tímabil. Liðið er í 11. sæti með 57 stig.

Millwall 1 - 2 Norwich
1-0 Mihailo Ivanovic ('56 )
1-1 Pelle Mattsson ('62 )
1-2 Oscar Schwartau ('76 )

Preston NE 1 - 1 QPR
1-0 Brad Potts ('46 )
1-1 Thierry Small ('82 , sjálfsmark)

Sheffield Wed 1 - 1 Leicester City
1-0 Jerry Yates ('2 )
1-1 Jordan Ayew ('84 )

Bristol City 1 - 0 Sheffield Utd
1-0 Mark Sykes ('23 )

Derby County 2 - 0 Stoke City
1-0 Jaydon Banel ('54 )
2-0 Carlton Morris ('89 )

Blackburn 0 - 0 West Brom

Watford 1 - 1 Charlton Athletic
0-1 Matty Godden ('62 )
1-1 Nestory Irankunda ('75 )

Ipswich Town 2 - 1 Birmingham
0-1 Carlos Vicente ('32 )
1-1 Ben Johnson ('41 )
2-1 Kasey McAteer ('45 )

Portsmouth 2 - 2 Oxford United
1-0 Keshi Anderson ('9 )
1-1 Brodie Spencer ('48 )
1-2 Will Lankshear ('81 )
2-2 Andre Dozzell ('87 )
Rautt spjald: Connor Ogilvie, Portsmouth ('17)
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 43 25 11 7 85 43 +42 86
2 Ipswich Town 42 21 13 8 73 44 +29 76
3 Millwall 43 22 10 11 58 47 +11 76
4 Southampton 43 21 12 10 75 51 +24 75
5 Middlesbrough 43 20 13 10 64 44 +20 73
6 Hull City 43 20 9 14 65 61 +4 69
7 Wrexham 43 18 13 12 65 60 +5 67
8 Derby County 43 19 9 15 62 53 +9 66
9 Norwich 43 18 7 18 59 52 +7 61
10 Bristol City 43 16 10 17 54 55 -1 58
11 QPR 43 16 10 17 58 65 -7 58
12 Sheffield Utd 43 17 6 20 61 59 +2 57
13 Birmingham 43 15 12 16 52 53 -1 57
14 Watford 43 14 15 14 52 53 -1 57
15 Swansea 43 16 9 18 51 56 -5 57
16 Preston NE 43 14 15 14 50 55 -5 57
17 Stoke City 43 15 10 18 49 48 +1 55
18 Portsmouth 43 13 12 18 44 57 -13 51
19 Charlton Athletic 43 12 14 17 40 52 -12 50
20 West Brom 43 12 13 18 44 56 -12 49
21 Blackburn 44 12 13 19 39 54 -15 49
22 Oxford United 43 10 14 19 41 55 -14 44
23 Leicester 43 11 14 18 54 65 -11 41
24 Sheff Wed 43 1 12 30 26 83 -57 -3
Slapp
banner
banner
banner