Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
banner
   sun 05. apríl 2026 15:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reykjavíkurslagurinn færður inn í Egilshöll
Valur og KR mætast í Mjólkurbikarnum.
Valur og KR mætast í Mjólkurbikarnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að færa stórleik KR og Vals í Mjólkurbikar karla inn í Egilshöllina.

Leiknum hefur jafnframt verið seinkað til klukkan 17:00.

Leikurinn átti upprunalega að fara fram á Meistaravöllum en veðurspáin er ekki góð fyrir morgundaginn.

Appelsínugular viðvaranir verða í gildi á höfuðborgarsvæðinu á morgun, annan í páskum. Það er ekkert ferðaveður og svo sannarlega ekkert veður til að spila fótbolta utandyra.
Slapp
banner
banner