Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
banner
   sun 05. apríl 2026 20:00
Viktor Ingi Valgarðsson
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Í Miðgarði fór fram leikur Stjörnunnar og Selfoss í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarins. Úrslit leiksins var 2-1 sigur Stjörnunnar sem er því komið áfram í 16-liða úrslit keppninar. 

Selfoss sem féll í fyrra úr Lengjudeildinni gaf þeim þó virkilega góðan leik en Jökull og hans menn eru sáttir með að vera komnir áfram. 


Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  1 Selfoss

„Við höfum síðustu tvö ár gert ágætlega í bikarnum, en við höfum farið ansi oft í framlengingu gegn neðri deildarliðum. Hugarfarið var gott og menn mættu klárir."

„Auðvitað hefði maður viljað sjá betri forustu þegar þeir skorað þetta helvíti góða mark. Annars bara hörkuleikur og gott að komast áfram."

Leikurinn var markalaus í hálfleik en Stjarnan var ekki lengi að breyta því þegar stigið var gras í þeim seinni hálfleik.

Við sköpuðum kannski ekki alveg nóg, einhver ágætisfæri en þeir fengu líka í færi í fyrri." 

Jökull hafði góð orð að segja um lið Selfoss. „Óli og Heiðar hafa gert vel með þetta lið og við vissum það. Vel þjálfaðir, drillaðir og skipulagðir." 

Framundan hjá Stjörnunni er fyrsti leikur í Bestu deildinni gegn KA á Akureyri þann 12. Apríl.

„Ég er mjög ánægður með hópinn, erum með sterkan hóp og förum mjög brattir og spenntir í þetta season."

„Það er aðeins öðruvísi þegar deildin byrjar en við erum bara spenntir og ætlum að eiga góða viku. Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir í tímabilið."


Slapp
banner
banner